|
Umsókna eyðublað fyrir Vaxtarsamning Austurlands 2010-1014 er hægt að nálgast hér
Úthlutað er úr Vaxtarsamningi Austurlands eftir þeim markmiðum sem koma fram í samningnum sjálfum (samninginn má sjá hér á síðunni). Það er stjórn samningsins sem fer með úthlutun styrkja. Hafa ber í huga að stjórnarmenn þekkja oft ekki til verkefnanna og þær upplýsingar sem þeir fá til yfirlestrar eru þær upplýsingar sem þið skilið inn. Þó geta stjórnarmenn óskað eftir frekari upplýsingum telji þeir þess þörf. Mikilvægt er að umsóknir séu skýrar og hnitmiðaðar og að megin inntak umsóknar komi fram á umsóknarblaðinu sjálfu. Ítarefni á einungis að vera til frekari útskýringa á verkefninu.
Þegar sækja á í Vaxtarsamning Austurlands er mikilvægt að kynna sér vel samninginn, markmið hans og hvað sé styrkhæft. Vaxtarsamningurinn fjármagnar t.d. ekki;
-
Fjárfestingu í hráefnum þar með talið tækjum og búnaði sem eru hlutar af afurð eða þjónustu sem ætluð er til sölu.
-
Fjárfestingu í sjálfu framleiðsluferlinu og umhverfi þeirra þar með talið húsnæði og tækjabúnað til framleiðslu afurða og þjónustu sem ætluð er til sölu.
-
Vaxtarsamningurinn samþykkir ekki kostnað sem fallið hefur til vegna verkefnis áður en umsókn er lögð inn, þ.m.t. mótframlag þátttakenda.
Mikilvægt er að það komi skýrt fram í hvað styrkurinn sem sótt erum á að fara. Ef verkefnið er umfangsmikið og einungis er verið að sækja um styrk fyrir hluta þess er mikilvægt að fram komi hver sá hluti er. Þannig er líka auðveldara að ljúka verkefninu fyrir styrkhafa.
Mikilvægt er að allar kostnaðar- og fjárhagstölur séu raunhæfar og séu útskýrðar sé þess þörf.
Vaxtarsamingurinn gerir kröfu til þess að verkefnið sé samstarfsverkefni þriggja eða fleiri aðila, og þarf verkefnið þar af leiðandi að fela í sér samvinnu af eitthverjum toga, sem kemur öllum þátttakendum til góða ekki bara einum aðila.
Góð regla er að vinna umsóknir í tíma og láta einhvern annan lesa yfir umsóknina og koma með athugasemdir. Þróunarfélagið getur aðstoðað við umsóknargerð og viljum við hvetja fólk til að nýta sér þá þjónustu.
|