|
Stefnt er að því að menntunarstig íbúa Austurlands verði sambærilegt við það sem gerist í nágrannalöndunum innan 15 ára. Fyrir þennan tíma verði hlutfall íbúa með háskólagráðu ekki undir 30%. Jafnframt verði rannsóknastarfsemi sambærileg við það sem best gerist í nágrannalöndunum. Byggt verði upp staðbundið og starfstengt háskólanám samhliða því að auka framboð á fjarnámi til samræmis við almennt framboð á staðbundnu háskólanámi í landinu. Stofnuð verði þekkingarsetur sem hafi það hlutverk að efla samstarf menntastofnana, rannsóknastofnana og atvinnulífs í landshlutanum. Rannsóknastofnanir á Austurlandi fái nægilegt fjármagn og mannauð til að geta stundað rannsóknir í samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir og sótt um rannsóknafé í alþjóðlega samkeppnissjóði. Einnig verði þeim gert kleyft að styrkja starfsmenn sína til frekari menntunar. Í framtíðinni verði hlutfall þekkingarstarfa á vinnumarkaði sambærilegt við það sem gerist í nágrannalöndunum. Þekkingariðnaður verði efldur og þekkingarstörfum fjölgað þannig að næg eftirspurn verði eftir menntuðu vinnuafli. Nýsköpun atvinnulífsins verði byggð á sérstöðu Austurlands, bæði með tilliti til náttúruauðlinda og þekkingarauðs. Lögð verði áhersla á nýsköpunarstarfsemi sem byggir á grunni hefðbundinna atvinnugreina og stóriðju, en einnig á nýjum atvinnugreinum þekkingariðnaðar svo sem ráðgjafarstarfsemi, rannsóknum og ferðaiðnaði.
|