|
Stefnt er að því að auka verðmætasköpun og arðsemi í matvælaframleiðslu þannig að áfram muni um þriðjungur íbúa á Austurlandi starfa við matvælaframleiðslu 2020. Í þróun greinarinnar verður lögð áhersla á að byggja upp samstarf og móta sameiginlega ímynd fyrir framleiðendur á svæðinu samhliða auknum stuðningi og ráðgjöf við nýsköpun og vöruþróun í greininni. Mikilvægt er að ímynd austfirskra framleiðenda byggi á gæðum framleiðslunnar (Gourmet neytendavara), sérstöðu svæðisins og séríslensku hráefni s.s. lambakjöti, hreindýrakjöti, villibráð, humri og þorsk.
|